Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 29. maí 2026 22:19
Stefán Marteinn Ólafsson
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH mátti þola tap á heimavelli í kvöld þegar Skagamenn mættu í heimsókn á Kaplakrika í 9. umferð Bestu deild karla.


Lestu um leikinn: FH 0 -  1 ÍA

„Svekkjandi að hafa tapað leiknum" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson svekktur eftir tapið í kvöld.

„Mér fannst við leggja ansi mikið í leikinn og vorum bara nokkuð þéttir varnarlega og við vissum að það yrði erfitt kannski að brjóta vörn Skagamanna niður því þeir voru nokkuð þéttir til baka með vel mannaða varnarlínu" 

„Við svona hefðum kannski geta nýtt stöðurnar aðeins betur sóknarlega. Við fengum ágætis stöður að koma boltanum inn í teig en það vantaði svona herslumuninn að skapa kannski einhver dauðafæri en leikurinn var í járnum og frábærlega klárað í markinu hjá þeim en ég veit ekki, kannski var hann rangstæður ég veit ekki en það kannski skiptir ekki öllu máli" 

„Þetta féll með þeim í dag og við erum nátturlega bara gríðarlega svekktir með að hafa tapað leiknum en frammistaðan að mörgu leyti góð" 

Það hafa verið miklar gagnrýnisraddir í kringum FH á tímabilinu.

„Hún er bara réttmæt. Fólk hefur rétt á sinni skoðun og þeir sem eru á þeirri skoðun og þeir sem eru að fjalla um fótbolta hafa rétt á sinni skoðun og menn sjá þetta bara frá mismunandi sjónarhorni en við sjáum allir og öll sem erum að fylgjast með deildinni að stigasöfnunin hefur ekki verið nógu góð hjá okkur" 

„Við erum ekki ennþá búnir að vinna leik og það er ekki gott. Það er ekki jákvætt og við þurfum að halda áfram að leggja okkur fram og gera það vel en auðvitað er þetta á minni ábyrgð að ná meira út úr liðinu og halda áfram að ýta þeim þangað til að við sjáum til þess að sigrarnir falli okkur í hag en það mun taka gríðarlega vinnu og verður alveg krefjandi fyrir mig og leikmennina áfram að halda áfram að leggja hart að okkur. Dag fyrir dag, viku fyrir viku og vera klárir þegar næsti leikur eftir landsleikjaverkefnið kemur" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson.

Nánar er rætt við Jóhannes Karl Guðjónsson í spilaranum hér fyrir ofan.


Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 8 1 0 29 - 5 +24 25
2.    KR 9 7 1 1 33 - 20 +13 22
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Breiðablik 8 4 3 1 19 - 11 +8 15
5.    Valur 9 5 0 4 18 - 17 +1 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
8.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
9.    Stjarnan 9 2 1 6 15 - 21 -6 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp
banner