„Ég er hrikalega ánægður og frábært að skora 5 góð mörk og halda hreinu og að vera kominn í 8 liða úrslit er nátturlega frábært og var markmiðið okkar."
Sagði Rúnar Páll glaður í brún eftir stórsigur sinna manna í kvöld
Sagði Rúnar Páll glaður í brún eftir stórsigur sinna manna í kvöld
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 0 Þróttur R.
Guðmundur Steinn átti frábæran leik og skoraði þrennu. Margir hafa efast um komu Guðmundar í Stjörnuna en hann er heldur betur að svara kallinu.
„Ég veit ekki alveg hvaða sokk þú ert að tala um en alla vega þá stóð hann sig mjög vel og skoraði þrjú góð mörk."
Sagði Rúnar og hló
Sölvi Snær leikmaður fæddur árið 2001 kom inn á fyrir Gaua á 57 mínútu og lífgaði heldur betur upp á leikinn.
„Hann var frábær í þessum leik hann er framtíðardrengur og hann á eftir að fá tækifærin í sumar."
Eyjólfur Héðinsson fór útaf meiddur eftir einungis 5 mínútna leik. Baldur kom inn á fyrir hann skoraði eitt mark og aftur útaf í stöðunni 3-0
„Planið var nú að skipta þessu hálfleik á milli þeirra tveggja og svo kom Baldur inn á og fór útaf aftur það var svona planið að láta þá ekki spila mikið það er stutt í næsta leik."
Hlusta má á allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir






















