Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   lau 25. júní 2011 21:21
Magnús Valur Böðvarsson
Tryggvi Hafsteinsson: Erum með allt annað lið en í fyrra
Tryggvi Hafsteinsson er annar þjálfara Grundafjarðar.
Tryggvi Hafsteinsson er annar þjálfara Grundafjarðar.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Tryggvi Hafsteinsson annar af þjálfurum Grundafjarðar var afar vonsvikinn eftir tap Grundafjarðar gegn liði Álftaness í þriðju deild karla í dag. Hann hafði þetta um leikinn að segja

„Það er leiðinlegt að tapa og sérstaklega á heimavelli, í byrjun lágum við mikið til baka sem við eigum ekkert að vera gera en um leið og við færum okkur ofar sérstaklega í seinni hálfleik þá eigum við fullt erindi í þá."

Grundfirðingar hafa komið á óvart í þriðju deildinni í ár og eru með 13 stig eftir 6 leiki en fengu aðeins 5 stig allt seinasta ár. Árangur þeirra í ár virðist þó ekki koma honum á óvart.

„Óvænt og ekki óvænt, við fengum sex stráka frá Víkingi Ólafsvík og erum í samstarfi við þá, við eru með allt annað lið en í fyrra, og flestir í formi nema kannski ég. Deildin er mjög góð og það eru 4-5 lið sem eru mjög góð og Álftanes er klárlega sterkasta liðið finnst mér og í toppformi."

Tryggvi var samt jákvæður uppá framhaldið að gera og liðið virðist ætla að stefna á sæti í úrslitakeppnina.

„Já klárlega úr því sem komið er við erum komnir með þrettán stig og vonandi getum við náð í 2-3 sterka stráka þegar glugginn opnar sagði Tryggvi að lokum
Slapp
banner
banner