Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fös 01. júlí 2011 22:05
Alexander Freyr Tamimi
Þorlákur: Fannst að liðið sem skoraði á undan myndi vinna
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Þorlákur Árnason þjálfari Stjörnunnar var að vonum svekktur eftir að Valsstúlkur slógu þær út í átta liða úrslitum Valitor bikarsins með 1-0 sigri í Garðabænum í kvöld.

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði, við ætluðum okkur að komast áfram. Þetta voru bara slagsmál, mér fannst við nú fá fleiri færi í leiknum og fram að markinu fannst mér við betri í heildina. En svo kom smá örvænting í þetta eftir að þær skoruðu,“ sagði Þorlákur við Fótbolta.net.

Eina mark leiksins kom eftir tæpan klukkutíma þegar Caitlin Miskel skoraði með frábæru skoti, en þó virtist Stjarnan ekki sækja nógu stíft eftir að þær lentu undir, heldur vantaði bit fram á við.

„Það getur vel verið. Þú vilt heldur ekki gefa Val mark númer tvö eða þrjú. Við reyndum að breyta en það vantaði bara gæði fram á við hjá okkur í dag til þess að skora. Í dag fannst mér bara að liðið sem myndi skora á undan vinna, og því miður gerðu Valsmenn það.“
Slapp
banner