Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   lau 09. janúar 2016 20:29
Magnús Már Einarsson
Baldur Kristjáns mætti á völlinn eins klæddur og leikmenn Brentford
Mynd: Twitter
Baldur Kristjánsson, ljósmyndari, mætti í fullum skrúða á leik Brentford og Walsall í enska bikarnum í dag.

Baldur lét ekki nægja að mæta í treyju Brentford til að styðja heimamenn heldur mætti hann í búningi liðsins í heild.

Baldur var í stuttbuxum og sokkum frá Brentford og var klár í allt í stúkunni.

Hér til hliðar má sjá mynd af Baldri á vellinum í dag en Sólmundur Hólm, vinur Baldurs, birti myndina á Twitter í kvöld.

Þrátt fyrir góðan stuðning Baldurs þá tapaði Brentford leiknum í dag 1-0.

Sam Mantom skoraði markið en hann spilaði með Haukum í Pepsi-deildinni árið 2010.



Athugasemdir
banner
banner