Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Víkings mættu Grindavík í Safamýrinni fyrr í kvöld, leikar enduðu 4-1. Ari Sigurpálsson kom sprækur inn af bekknum en hann kom í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 4 Víkingur R.
„Erfiður leikur, Grindavík eru með gott lið, góðan mannskap og góðan þjálfara sem þjálfaði mig hjá HK, Brynjar Björn. Við bjuggumst við erfiðum leik enda stilttum við upp sterku liði og geggjað að vera komnir í 8-liða úrslit."
„Við erum með sigurvegara í þessu liði. Ég hef aldrei tapað í bikar, bæði í meistaraflokki og yngri flokkum. Það er sigurhefð, við viljum vinna bikara."
Ari glímdi mikið við meiðsli á síðasta tímabili
„Ég er búinn að vera heill allt tímabilið og eiginlega allt undirbúningstímabilið líka, ég gæti ekki verið betri eins og staðan er núna."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir