Forseti Íslands þakkar hinum „frábæra" Pyry Soiri
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hrósar frammistöðu íslenska karlalandsliðsins eftir sigur þeirra gegn Tyrkjum í Eskisehir. Leiknum lauk 3-0 og er Ísland í frábærri stöðu fyrir lokaleikinn gegn Kósóvó.
Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir Bjarnason og Kári Árnason sáu allir til þess að Ísland færi með sigur af hólmi og er Ísland nú í efsta sæti I-riðils með 19 stig, tveimur meira en Króatía sem er í öðru sæti.
Króatar klúðruðu leik sínum gegn Finnlandi. Mario Mandzukic kom Króötum yfir áður en Pyry Soiri jafnaði metin undir lok leiksins og tók pálmann úr höndunum á Króötum um örugga sætið á HM.
Guðni Th. er mikill knattspyrnuáhugamaður og skrifaði um leikinn á heimasíðu sinni á Facebook.
„Frábær sigur strákanna okkar í fótboltanum! Enn er ekkert fast í hendi en við höfum eigin örlög í okkar höndum.
Og eitt enn, í anda norrænnar samvinnu: Kiitos, loistava Pyry Soiri!," sagði Guðni á Facebook-síðu sinni.



