Fjórar úr unglingalandsliðinu semja við Fylki (Staðfest)
Knattspyrnudeild Fylkis var að styrkja hóp meistaraflokks kvenna með fjórum nýjum leikmönnum sem eiga allar að baki leiki fyrir unglingalandslið Íslands.
Eva Rut Ásþórsdóttir, fædd 2001, er komin til félagsins eftir að hafa spilað 15 leiki fyrir HK/Víking í Pepsi Max-deild kvenna í sumar. Í heildina hefur hún spilað 75 meistaraflokksleiki og hefur gert 5 mörk í 13 leikjum með U19 landsliði Íslands.
Tvíburasysturnar Íris Una og Katla María Þórðardætur eru þá einnig komnar til Fylkis eftir fjögur ár hjá Keflavík. Þær eru fæddar 2001 og búa yfir mikilli reynslu.
Báðar eiga þær yfir 100 meistaraflokksleiki að baki fyrir Keflavík og eru þær fastamenn í U19 ára landsliðinu. Íris Una á 22 landsleiki að baki og Katla María 33.
Að lokum er Tinna Harðardóttir gengin í raðir félagsins úr Breiðablik. Hún er fædd 2003 og þykir gríðarlega efnileg, en hún skoraði 9 mörk í 9 leikjum í 2. deildinni í fyrra, aðeins 15 ára gömul.
Tinna missti af síðasta sumri vegna meiðsla og verður áhugavert að fylgjast með þróun hennar á næstu árum. Hún á 9 landsleiki að baki fyrir U17 og U16 og þá hefur hún skorað 11 mörk í 17 meistaraflokksleikjum á ferlinum.
„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur í Fylki. Við erum gríðarlega ánægð með að hafa fengið þessa efnilegu leikmenn til okkar, leikmenn sem hafa mikinn metnað og vilja til að bæta sig," sagði Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis.
„Við ætlum okkur að gefa þeim tækifæri til þess að vaxa og dafna og erum fullviss um að þær muni styrkja okkar góða hóp og vera framtíðarleikmenn hjá Fylki. Við erum mjög spennt fyrir komandi tímum hér í Árbænum,"
Fylkir gerði fína hluti í Pepsi Max-deild kvenna í sumar og endaði um miðja deild, með 22 stig.


