Heimild: BBC 
            
                                        
                                                                                                                                                                                                                                        
                                                                
                Stuðningsmenn Watford mótmæltu á leik liðsins gegn Plymouth Argyle í ensku Championship deildinni í gær því að Al Bangura leikmaður liðsins hafi misst landsvistarleyfi sitt á Englandi og verði væntanlega sendur aftur til heimalands síns Sierra Leone.
                
                
                                    Stuðningsmennirnir héldu allir á plakötum með mynd af Bangura og undir henni stóð: ,,Hann er í fjölskyldunni.". Það voru reyndar stuðningsmenn beggja liða sem tóku þátt í mótmælunum eða um 18 þúsund manns og þegar plakötin fóru á loft táraðist leikmaðurinn. Bangura kom til Bretlands fyrir fjórum árum síðan úr stríðshrjáðu heimalandi sínu.
Myndirnar að neðan sýna stuðninginn sem Bangura fékk á leiknum.
Athugasemdir
                                                                
                                                        


