Jói Kalli þjálfari HK var hundsvekktur eftir leikinn gegn Selfyssingum Inkasso deildinni í dag. Jafnræði var með liðunum og fengu HK-ingar sín færi til þess að jafna leikinn.
Lestu um leikinn: Selfoss 1 - 0 HK
„Mér fannst ekkert mikið klikka. Selfoss náði að skora fyrsta markið og það er oft mjög mikilvægt í fótbolta. Þeir náðu að hanga á því alveg til leiks loka alveg eins og úrsitin gefa til kynna.
„Mér fannst við sérstaklega í seinni hálfleik gera ansi mikið til þess að reyna að ná að jafna leikinn. Sanngjarnt og ekki sanngjarnt en mér hefði fundist það sanngjarnt að við hefðum náð jöfnunarmarkinu.
„Ég ætla ekki að taka neitt af Selfyssingunum. Þeir eru með hörkulið, vel skipulagðir og það er erfitt að brjóta þá niður. Þetta var erfiður leikur og mér fannst ekki mikið að í okkar leik í dag.
Það er mikill pakki fyrir miðju í Inkassodeildinni og stutt í báðar áttir í rauninni.
„Algjörlega. Þetta er hörkudeild. Við viljum fara að horfa uppá við og viljum vera í efra hluta deildarinnar en það verður erfitt. Hver leikur fyrir sig verður virkilega erfiður.
Athugasemdir





















