Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   þri 05. apríl 2022 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Árni um nafna sinn: Betri en allir þorðu að vona
Árni Marinó
Árni Marinó
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Snær
Árni Snær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við bara sínum að við erum aðeins betri en það," sagði fyrirliði ÍA, Árni Snær Ólafsson, við Fótbolta.net í gær þegar honum var tilkynnt að liðinu væri spáð tíunda sætinu í Bestu deildinni í sumar.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 10. sæti: ÍA

„Við stefnum allataf hærra en ég skil þessa spá. Við erum búnir að ræða um markmið og teljum okkur betri en tíunda sætið."

Árni var frá stærstan hluta síðasta tímabils en sneri til baka í upphafi árs.

„Ég hef ekki fundið fyrir meiðslunum síðan og vonum að það haldist þannig áfram."

„Það var erfitt fram að endasprettinum að fylgjast með, maður var neikvæður á þetta en trúði samt að við myndum halda okkur uppi. Svo voru þrír leikir eftir og þá var þetta orðið helvíti svart. Svo tók maður bara þátt í stemninguna þrjá leikina. Fyrst það rættist svona úr þessu þá var þetta bara gaman,"
sagði Árni.

Nafni hans Árni Marinó Einarsson varði mark ÍA seinni hluta síðasta tímabils. Hvernig horfir samkeppnin við þér?

„Við erum tveir solid markmenn að berjast um eina stöðu. Ég held við séum báðir undirbúnir fyrir samkeppni, sama hvernig hún fer. Ég var ánægður með hann í fyrra, hann var helvíti flottur, mjög solid og betri en að ég held allir þorðu að vona. Bæði allir upp á Skaga og bara allir á landinu. Hann var bara geggjaður."

„Ég vona að ég byrji fyrsta leik og undirbý mig þannig."


Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan.
Slapp
banner