Real Madrid undirbýr risatilboð í Rodri - Maguire orðaður við Sádi-Arabíu - Olise í stað Salah?
   sun 05. október 2025 16:27
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Rashford skoraði í hrikalegu tapi Börsunga
Sevilla skoraði fjögur gegn meisturunum
Sevilla skoraði fjögur gegn meisturunum
Mynd: EPA
Marcus Rashford kom að marki í sjöunda leiknum í röð
Marcus Rashford kom að marki í sjöunda leiknum í röð
Mynd: EPA
Spænsku meistararnir í Barcelona töpuðu óvænt fyrir Sevilla, 4-1, í 8. umferð La Liga á Spáni í dag.

Börsungar voru án Lamine Yamal, Raphinha og fleiri öflugra leikmanna gegn Sevilla en það var engin afsökun enda liðið með stóran og gæða mikinn hóp.

Sevilla komst í tveggja marka forystu á rúmum hálftíma. Alexis Sanchez skoraði gegn sínum gömlu félögum með marki úr vítaspyrnu á 13. mínútu og bætti Isaac Romero við öðru á 36. mínútu.

Enski sóknarmaðurinn Marcus Rashford minnkaði muninn fyrir Barcelona undir lok fyrri hálfleiks en þetta er sjöundi leikurinn í röð sem hann kemur að marki hjá spænska stórliðinu.

Robert Lewandowski fékk tækifæri til að jafna metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en klikkaði af vítapunktinum og í kjölfarið náðu heimamenn að ganga frá Börsungum með tveimur mörkum undir lok leiks.

Jose Carmona skoraði á 90. mínútu og Akor Adams síðan fjórða markið og annan leikinn í röð þegar lítið var eftir. Mögnuð frammistaða hjá Sevilla sem er komið upp í 4. sæti með 13 stig en Barcelona í öðru með 19 stig.

Alaves 3 - 1 Elche
1-0 Carlos Vicente ('76 , víti)
2-0 Toni Martinez ('81 )
3-0 Lucas Boye ('90 )
3-1 Andre Silva ('90 )
Rautt spjald: David Affengruber, Elche ('79)

Sevilla 4 - 1 Barcelona
1-0 Alexis Sanchez ('13 , víti)
2-0 Isaac Romero Bernal ('36 )
2-1 Marcus Rashford ('45 )
2-1 Robert Lewandowski ('76 , Misnotað víti)
3-1 Akor Adams ('90 )
4-1 Jose Carmona ('90 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 8 7 0 1 19 9 +10 21
2 Barcelona 8 6 1 1 22 9 +13 19
3 Villarreal 8 5 1 2 14 8 +6 16
4 Espanyol 8 4 3 1 11 9 +2 15
5 Elche 8 3 4 1 11 9 +2 13
6 Sevilla 8 4 1 3 15 11 +4 13
7 Athletic 8 4 1 3 9 9 0 13
8 Atletico Madrid 7 3 3 1 14 9 +5 12
9 Betis 8 3 3 2 11 8 +3 12
10 Alaves 8 3 2 3 9 8 +1 11
11 Getafe 8 3 2 3 9 11 -2 11
12 Osasuna 8 3 1 4 7 8 -1 10
13 Levante 8 2 2 4 13 14 -1 8
14 Valencia 8 2 2 4 10 14 -4 8
15 Vallecano 8 1 3 4 7 10 -3 6
16 Real Sociedad 8 1 3 4 7 11 -4 6
17 Girona 8 1 3 4 5 17 -12 6
18 Oviedo 8 2 0 6 4 14 -10 6
19 Celta 7 0 5 2 6 9 -3 5
20 Mallorca 8 1 2 5 7 13 -6 5
Athugasemdir
banner