Trent áfram hjá Real Madrid - Arsenal á eftir Alvarez - Bayern og Liverpool berjast um Diomande
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Þriðji hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
Fékk Skagaelítuna á bakið - „Eflaust brotið einhver hjörtu hefði ég ekki komið“
Tekur við eftir að leikmenn neituðu að spila fyrir félagið
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
   mið 06. september 2017 20:35
Guðrún Höskuldsdóttir
Hemmi Hreiðars: Hafði trú á að kraftaverk væri í uppsiglingu
Kvenaboltinn
Hermann Hreiðarsson
Hermann Hreiðarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þetta eru gríðarlega svekkjandi úrslit, sérstaklega eftir frammistöðuna í fyrri hálfleik. Það er eins og það hafi verið lamin úr okkur allur vindur og kraftur með þessum tveimur mörkum úr hornspyrnum. Það er náttúrulega bara hræðilegt á móti svona sterku fótboltaliði. Maður er ofboðslega svekktur með þetta. sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari Fylkis eftir tap liðsins gegn KR í kvöld en Fylkir er nú fallið úr efstu deild.

Okkur ber skylda til að fara inn í þessa síðustu tvo leiki af fullum krafti eins og við höfum gert í síðustu leikjum, það breytist ekkert.

Maður var bara að svara kallinu, þetta var alltaf bara til skamms tíma, maður er búin að vera í kringum þetta og ber tilfinningar til liðsins. Það var nú engin biðröð eftir þessu starfi. Ég vildi blása smá lífi og trú í þetta og þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt.
sagði Hemmi aðspurður út í hvort hann hygðist halda áfram með liðið.

Maður er svekktur, maður hafði trú á að það væri kraftaverk í uppsiglingu. sagði Hemmi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner