Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   mið 07. júní 2017 13:15
Arnar Daði Arnarsson
Ásgeir Börkur: Frábært að fá FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Efsta liðið í Inkasso-deildinni, Fylkir mætir Íslandsmeisturum FH í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Dregið var í hádeginu í dag.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fyrirliði Fylkis sagðist ekki hafa haft neina sérstaka drauma mótherja fyrir dráttinn, KR hafi þó komið upp í hugann.

„Ég var ekki með neina sérstakar óskir þannig séð. Ég vildi heimaleik og það er raunin og ég er glaður með það."

„Á einhverjum tímapunkti í bikarnum þurfum við að mæta toppliði og það er fínt að gera það núna. Ég var eitthvað að tala um það áðan að ég vildi fá KR heima, þar sem við unnum þá tvisvar sinnum í vetur. Það hefði kannski verið drauma mótherji en FH er líka frábært," sagði Ásgeir Börkur.

Fylkir eru efstir í Inkass-deildinni með 13 stig að loknum fimm umferðum.

„Þetta hefur gengið vel. Þetta sýnir hversu sterkan og góðan hóp við erum með. Við höfum sýnt það ágætlega í Árbænum að vera svolítið í röffinu og þurfa að berjast fyrir hlutunum. Þetta hefur hentað okkur vel," sagði Ásgeir en liðið hefur unnið fjóra og gert eitt jafntefli.

„Síðan höfum við sýnt það þegar við höfum náð yfirtökum á baráttunni og öllu sem því fylgir þá höfum við náð að spila okkar leik og það hefur gengið vel."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner