„Ég hef ekki séð neitt einasta lið pressa FH jafn vel og við gerðum í fyrri hálfleik," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eftir 1-0 útisigur liðsins á FH í kvöld.
Kennie Chopart skoraði sigurmarkið á 98. mínútu í leik hinna fáu tækifæra.
„Það er gjarnan þannig, þegar þú ert búinn að leggja mikið á þig og liðið er búið að vinna vel sem heild, þá uppskerð þú í samræmi við það."

Lestu um leikinn: FH 0 - 1 KR
Skúli Jón Friðgeirsson fór meiddur af velli snemma leiks og Aron Bjarki Jósepsson leysti hann af hólmi. Aron var einnig borinn af velli undir lok leiksins.
„Það er mikið að missa tvo öfluga miðverði. Það er vika í næsta leik og Skúli er í banni þar. Ég vona að við náum Aroni saman."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir