Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mán 09. maí 2022 16:46
Elvar Geir Magnússon
Hárrétt ákvörðun að dæma mark KR af
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markalaust jafntefli var niðurstaðan í leik KR og KA í Bestu deildinni á laugardaginn.

Pálmi Rafn Pálmason kom boltanum í netið undir lok fyrri hálfleiks og fagnaði vel og innilega. Dómararnir ræddu sín á milli áður en markið var tekið af.

Atli Sigurjónsson snerti boltann áður en hann barst til Pálma og það gerði Pálma rangstæðan.

Snertingin frá Atla sást illa í sjónvarpsupptöku og margir töldu að dómararnir hafi gert mistök. En eins og sjá má hér að neðan þá var hárrétt að dæma markið af.


Athugasemdir
banner
banner
banner