„Eftir að ég heyrði af áhuga frá þeim í gær, þá var þetta enginn vafi hjá mér. Stjarnan er spennandi og ég vildi koma hingað," sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson nýjasti leikmaður Stjörnunnar.
Stjarnan kaupir Þórarinn frá FH þar sem hann hefur verið síðastliðin þrjú árin eftir hafa leikið þár áður með ÍBV. Í tilkynningu Stjörnunnar er FH-ingum þakkað fyrir fagmannlegar viðræður. Þórarinn tekur undir það, að fagmannlega hafi verið komið að málinu.
„Þetta var unnið fagmannlega hér og í Krikanum. Menn unnu þetta saman og af virðingu. Ég á þeim mikið að þakka hinum megin að hafa klárað þetta hratt og örugglega."

Hópurinn hjá FH er mjög breiður og Þórarinn var farinn að falla aftar í goggunarröðina.
„Við (innskot fréttamanns. - Þórarinn og Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH) áttum samtal. Ég er 28 ára og það er ekkert launungarmál að maður vill spila. Eins og staðan var þá var maður ekki númer eitt. Maður virðir það, það eru góðir leikmenn í FH líka."
„Þess vegna var komist að þeirri niðustöðu að það væri kannski best fyrir mig að líta í kringum mig."
Leikstíll Stjörnunnar hentar vel fyrir Þórarin.
„Þetta er klúbbur sem spilar skemmtilegan fótbolta, kraftmikinn. Það eru að herja meiðsli og vonandi spilar maður í fyrsta leik."
„Ég get komið inn með baráttu og vilja, að maður nái í þessi stig sem eiga heima hérna í Garðabænum," sagði Þórarinn að lokum en viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Sjá einnig:
Rúnar Páll: Hann er með karakterinn sem hentar okkur
Athugasemdir