Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vilja fá Kante á láni fyrir HM
Mynd: EPA
Sádi-arabíska félagið Al-Hilal er í viðræðum við Al-Ittihad um að fá N'Golo Kante á láni fyrir gluggalok í kvöld.

Al-Hilal vill fá Kante fyrir HM félagsliða en sérstakur HM gluggi er nú opinn. Glugginn lokar klukkan 19 í kvöld.

Al-Hilal og Kante eru samkvæmt The Athletic að gera sér vonir um að samningar náist fyrir gluggalok svo að þessi fyrrum miðjumaður Leicestr og Chelsea geti spilað á HM.

Kante spilaði 35 leiki á tímabilinu, skoraði fjögur mörk og lagði upp fjögur. Kanter 34 ára franskur miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner