„Ég hefði búist við því að hafa meira að gera. Við erum að spila gegn einu af bestu liðum heims og við náðum að halda þeim mjög vel í skefjum," sagði markvörðurinn, Hannes Þór Halldórsson eftir 1-0 sigur á Króötum í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Króatía
„Mér leið vel. Þetta var tens og maður veit aldrei hvernig þetta spilast í leiknum þó svo að það sé lítið að gera. Það getur alltaf eitthvað brotist út og hlutirnir eru fljótir að breytast. Maður er að búa sig undir hvað sem er, þetta var tens og taugarnar voru þandar en þeim mun sætara þegar við náum að klára þetta," sagði Hannes Þór sem segir þetta hafa verið ótrúleg stund.
„Að ná að vinna, halda hreinu og skora í uppbótartíma. Þetta gerist ekki sætara, þetta er algjörlega draumkennt augnablik."
Undirritaður tók eftir því í seinni hálfleik að þegar íslenska liðið fékk fast leikatriði framarlega á vellinum, þá stóð Hannes einn í sínum heimi og öskraði upp í loftið.
„Ég stóð aftast og kallaði "plís, plís, plís" - það voru greinilega einhverjir æðri máttarvöld sem voru að hlusta, því við náðum að pota inn einu marki. Þetta er augnablik sem maður dreymir um að upplifa. Miðað við stöðuna í riðlinum, söguna gegn Króötum og allt sem var undir og stemninguna á vellinum."
„Fyrir það fyrsta þá eru 1-0 sigrarnir sem þú skorar í uppbótartíma alltaf sætustu sigrarnir en ég tala nú ekki um, við svona tilefni og svona stund. Þetta er ólýsanlegt. Stemningin var síðan alveg mögnuð eins og hún hefur verið síðustu fjögur ár. Fólk nær alltaf að toppa sig," sagði Hannes.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















