Kristján Guðmundsson og lærisveinar hans í ÍBV fóru í fýluferð norður á Akureyri þar sem liðið tapaði 2-0 fyrir KA.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 ÍBV
„Það er bara svekkelsi að við skyldum ekki standa okkur betur. Við vissum alveg hvernig leikur þetta yrði, barningur og mikið um mistök og erfitt að ráða við boltann," sagði Kristján aðspurður um fyrstu viðbrögð hans eftir leik.
„Í báðum mörkum erum við mjög linir í varnaraðgerðum inn í okkar vítateig."
Aðspurður hvort Eyjamenn muni bæta í hópinn fyrir lok félagaskiptagluggann segir Kristján að ef þeir finna einhvern vel húðflúraðan gæti það verið.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























