Framlengt á Skaganum
Elmar Kári Enesson Cogic fór hamförum þegar Afturelding vann stórsigur á Njarðvík í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Aron Elí Sævarsson kom Aftureldingu yfir snemma leiks þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Elmari.
Aron Elí Sævarsson kom Aftureldingu yfir snemma leiks þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Elmari.
Það var eina markið í fyrri hálfleik en Elmar bætti öðru markinu við með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Bart Kooistra bætti þriðja markinu við þegar hann skoraði á opið markið eftir undirbúning bræðrana Elmars og Enes Þórs Enersonar Cogic.
Elmar og Óðinn Bjarkason sluppu síðan í gegn og Óðinn skoraði fjórða markið eftir sendingu frá Elmari. Það var síðan Elmar sem skoraði annað mark sitt og fimmta mark Aftureldingar eftir sendingu frá bróður sínum.
Felix Lima Santos og Haraldur Smári Ingason klóruðu í bakkann fyrir Njarðvík en nær komust þeir ekki og Afturelding vann sannfærandi sigur.
Lengjudeildarlið HK fékk Íslandsmeistara Víkings í heimsókn í Kórinn. Víkingar voru sterkari í fyrri hálfleik en staðan var enn markalaus í leikhléi.
Bæði lið fengu góð færi til að skora í upphafi seinni hálfleiks en Víkingar brutu ísinn þegar Valdimar Þór Ingimundarson skoraði eftir sendingu frá Oliver Ekroth.
Víkingur fékk síðan vítaspyrnu undir lokin og Elías Már Ómarsson skoraði úr henni og innsiglaði sigur liðsins.
Það er framlengt á Skaganum þar sem Grindavík er í heimsókn en Gunnleifur Orri Gunnleifsson kom Grindvíkingum í framlengingu þegar hann jafnaði metin í blálokin.
Afturelding 5 - 2 Njarðvík
1-0 Aron Elí Sævarsson ('11 )
2-0 Elmar Kári Enesson Cogic ('53 )
3-0 Bart Kooistra ('62 )
4-0 Óðinn Bjarkason ('68 )
5-0 Elmar Kári Enesson Cogic ('71 )
5-1 Felix Lima Santos ('83 )
5-2 Haraldur Smári Ingason ('92 )
Lestu um leikinn
HK 0 - 2 Víkingur R.
0-1 Valdimar Þór Ingimundarson ('72 )
0-2 Elías Már Ómarsson ('86 , víti)
Lestu um leikinn
ÍA 1 - 1 Grindavík (Framlenging í gangi)
1-0 Erik Tobias Tangen Sandberg ('16 )
1-1 Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('90 )
Lestu um leikinn


