Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   lau 05. júlí 2025 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Oasis heiðraði Jota á fyrstu tónleikum sínum í 16 ár
Frá tónleikunum.
Frá tónleikunum.
Mynd: X
Bræðurnir í Oasis heiðruðu minningu Diogo Jota á fyrstu tónleikum sínum í 16 ár í gærkvöldi. Tónleikarnir fóru fram í Cardiff í gærkvöldi og vöktu mikla lukku hjá aðdáendum sveitarinnar.

Þau hörmulegu tíðindi bárust á fimmtudag að Jota, sem lék með Liverpool og portúgalska landsliðinu, hefði látið lífið í bílslysi á Spáni. Hann var bara 28 ára gamall.

Þetta eru fréttir sem slógu marga enda var Jota á hátindi fótboltaferils síns og nýbúinn að gifta sig. Hann lætur eftir sig þrjú ung börn.

Á meðan Oasis bræður sungu lagið 'Live Forever' í gær þá settu þeir upp mynd af Jota á skjá.

Virkilega fallega gert hjá þeim en Gallagher bræður eru mikil fótboltaaðdáendur og styðja við bakið á Manchester City. Fótboltaheimurinn allur syrgir Jota sem var elskaður og dáður af liðsfélögum sínum, sem og af stuðningsmönnum Liverpool.


Athugasemdir
banner