Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   þri 15. desember 2020 14:28
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu ölvunarakstur Grealish - Lögreglan birti myndbandið
Mynd: Twitter
Jack Grealish hefur misst ökuréttindi sín í níu mánuði en dómur var kveðinn upp í dag.

Í mars keyrði Grealish, sem er fyrirliði Aston Villa og leikmaður enska landsliðsins, utan í bifreiðar sem búið var að leggja. Grealish var valtur og klæddur í einn svartan og annan hvítan inniskó eftir atvikið.

Það var sterk áfengislykt af honum og hann var þvoglumæltur að sögn vitnis sem var á staðnum.

Hann skellti sér í partí heima hjá Ross McCormack, fyrrum liðsfélaga sínum hjá Aston Villa og eftir það settist hann undir stýrið.

Eins og sjá má á þessu myndbandi hér að neðan þá var Grealish alls ekki í ökuhæfu ástandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner