Verðmiðinn á Rashford - Mikið tap hjá Ratcliffe - Newcastle vill Gittens
   fös 16. maí 2025 19:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Breiðablik rúllaði yfir Val
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 4 - 0 Valur
1-0 Agla María Albertsdóttir ('1 )
2-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('35 )
3-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('43 )
4-0 Karitas Tómasdóttir ('72 )
Lestu um leikinn

Íslandsmeistarar Breiðabliks fengu bikarmeistara Vals í heimsókn í Bestu deild kvenna í kvöld. Liðin hafa fagnað misjöfnum árangri á þessu tímabili til þessa.

Blikar hafa verið sjóðandi heitar fyrir framan mark andstæðingana og það var engin breyting þar á í kvöld. Agla María Albertsdóttir var kölluð inn í landsliðshópinn í gær og hún fagnaði því með frábærri frammistöðu í kvöld.

Hún kom liðinu yfir eftir tæplega mínútu leik þegar hún skoraði með góðu skoti í fjærhornið. Berglind Björg Þorvaldsdóttir var komin með fimm mörk fyrir leik kvöldsins, hún bætti við tveimur mörkum, það fyrra tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks og seinna eftir vandræðagang í vörn Vals undir lok fyrri hálfleiks.

Karítas Tómasdóttir gerði svo endanlega út um vonir Valskvenna þegar hún skoraði eftir hornspyrnu frá Öglu Maríu. Blikar á toppnum en þriðja deildartap Valskvenna í röð
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 6 5 1 0 28 - 5 +23 16
2.    FH 5 4 1 0 10 - 2 +8 13
3.    Þróttur R. 5 4 1 0 10 - 4 +6 13
4.    Þór/KA 5 3 0 2 11 - 10 +1 9
5.    Valur 6 2 1 3 6 - 8 -2 7
6.    Fram 5 2 0 3 6 - 13 -7 6
7.    Stjarnan 5 2 0 3 7 - 15 -8 6
8.    Víkingur R. 5 1 0 4 8 - 13 -5 3
9.    Tindastóll 5 1 0 4 4 - 10 -6 3
10.    FHL 5 0 0 5 3 - 13 -10 0
Athugasemdir
banner
banner
banner