Pétur Guðmundsson verður fjórði dómari í leik Fram og KR í Bestu deildinni í kvöld en Sigurður Hjörtur Þrastarson mun dæma leikinn.
Pétur, sem hefur verið einn besti dómari landsins um árabil, ætlaði að leggja flautuna á hilluna eftir síðasta tímabil en hætti við að hætta og er nú mættur aftur til leiks í Bestu deildinni.
Pétur starfar sem lögregluvarðstjóri og dæmdi bikarúrslitaleikinn í fyrra en það var hans annar úrslitaleikur.

Pétur dæmdi í Lengjudeildinni í gær, leik ÍR og Þórs, þar sem Akureyrarliðið vann 1-0 útisigur.
Dómararnir í leik Fram og KR í kvöld:
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Aðstoðardómari 1: Patrik Freyr Guðmundsson
Aðstoðardómari 2: Eðvarð Eðvarðsson
4ði dómari: Pétur Guðmundsson
Athugasemdir