Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   mán 19. september 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Margrét Lára: Erum í dauðafæri til að fylla þennan völl
Kvenaboltinn
Margrét Lára fagnar í leiknum gegn Slóveníu.
Margrét Lára fagnar í leiknum gegn Slóveníu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég reikna með að þeir sem mættu á föstudaginn mæti aftur á morgun og 2000-3000 til. Þetta verður vonandi jafn skemmtilegt og á föstudaginn," sagði landsliðsfyrirliðinn Margrét Lára Viðarsdóttir við Fótbolta.net í dag.

Rúmlega 6000 áhorfendur sáu Ísland vinna Slóveníu á föstudaginn og Margrét vonast eftir að sjá fleiri á vellinum gegn Skotum klukkan 17:00 á morgun. Margrét vonast til að áhorfendametið verði slegið en það er 6647 áhorfendur.

„Við erum í dauðafæri til þess að slá það og við erum í dauðafæri til að fylla þennan völl. Við erum komnar á EM og það er engin pressa nema á að spila góðan leik. Okkur langar að þakka þessu góða fólki sem kemur að horfa á okkur með góðum leik og við viljum sýna og sanna að við séum besta liðið í þessum riðli."

Ísland sigraði Skotland 4-0 fyrr á þessu ári en Margrét býst við erfiðari leik á morgun.

„Við áttum toppdag í Skotlandi og þær sinn versta. Fótbolti er þannig að maður þarf yfirleitt að toppa sig til að ná úrslitum. Við ætlum að reyna að ná því fram á morgun," sagði Margrét.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner