Felix Örn Friðriksson var maður leiksins þegar ÍBV vann 3-0 sigur í Ólafsvík í 4. umferð Pepsi deildar karla.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 0 - 3 ÍBV
Felix var í vinstri vængbakverði í leiknum og lagði hann upp 2 af 3 mörkum liðsins.
"Ég bara lagði mig allan fram og þetta var mjög langt og erfitt ferðalag. Mjög mikið vinnuframlag og góð liðsheild í dag"
Felix hefur spilað í vængbakvörðinn undanfarna leiki og er hann að fýla sig í botn í þeirri stöðu
"Ég vill frekar vera framar á vellinum og tel mína styrkleika vera þar og það er bara geggjað að fá að hlaupa svona. Frábært að geta komið með svona assist og hjálpa liðinu að sigra. Ég var svolítið þreyttur í lokin en það er hægt að vinna í því."
Sjá má viðtalið í heild sinni hér að ofan
Athugasemdir























