Guðmundur Valur Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur var vissulega mjög kátur eftir 1-0 sigur á ÍR í dag en með sigrinum tryggði Grindavík sér Pepsi-deildar sæti að ári.
Hann segir þetta hafa verið stefnu liðsins frá byrjun sumars.
Hann segir þetta hafa verið stefnu liðsins frá byrjun sumars.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 0 ÍR
„Þetta hljómar frábærlega, þetta var alltaf stefnan síðan ég tók við."
Emma Higgins, markmaður liðsins, var rekin útaf í leiknum í dag en Guðmundur átti erfitt með að lýsa því sem átti sér stað.
„Ég kann ekki að lýsa því sem gerðist. Þetta var flókið. Markmaðurinn var eitthvað að rugla og dómarinn var ekki klár á þessu heldur," sagði Guðmundur.
Hann segir Grindavík ætla að láta finna fyrir sér í deild þeirra bestu.
„Grindavík er að fara upp í Pepsi-deildina til að gera eitthvað, ekki bara hanga."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir






















