Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   sun 29. maí 2022 09:59
Brynjar Ingi Erluson
Kvartar yfir stuðningsmönnum Liverpool og Real Madrid - „Þetta er dónaskapur"
Camila Cabello fyrir leikinn í gær
Camila Cabello fyrir leikinn í gær
Mynd: EPA
Kúbverska söngkonan Camila Cabello var verulega ósátt við hegðun stuðningsmanna á meðan hún reyndi að skemmta áhorfendum fyrir leik Liverpool og Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í gær.

Cabello er stórt nafn í tónlistarbransanum og hefur gefið frá sér marga vinsæla smelli en hún var fengin til að syngja fyrir stórleikinn í París.

Stuðningsmenn beggja liða voru ekki á þeim buxunum að syngja í takt við Cabello og heyrðist það vel í útsendingunni.

Cabello kvartaði yfir þessu á Twitter í gær og segir þetta dónalega framkomu í hennar garð.

„Ég er að horfa á þetta aftur og ég hreinlega trúi því ekki að fólk hafi verið að syngja eigin liðssöngva og það svona hátt á meðan við vorum að spila. Ég og teymi mitt lögðum mikið á okkur til að koma með réttu orkuna í þetta og gera þetta að góðri sýningu."

„Þetta var mjög dónalegt en þetta skiptir ekki máli. Ég er ánægð að þið elskuðuð þetta,"
sagði Cabello áður en hún eyddi færslunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner