Xavi Simons, Baleba, Höjlund, Akliouche, Kevin, Dibling, Garnacho og fleiri góðir í slúðri dagsins
Donni skýtur á Útlendingastofnun: Fásinna og sorglegt að þetta strandi á ríkisstofnun
Óli Kristjáns: Með verri frammistöðum hjá Þróttaraliðinu í ár
Viktor Karl: Komum ferskir inn í seinni en það var eiginlega bara of seint
Dóri Árna: Við hefðum þurft að vera betri
Fyrirliðinn róar taugar stuðningsmanna - „Byrjunin frekar en toppurinn"
Alli Jói: Skilst að við hefðum átt að falla, enda í neðsta sæti og ekki vinna leik
Siggi Höskulds: Fannst við stúta þeim í 80 mínútur
Halli Hróðmars: Það var ákveðið andleysi
Haraldur Freyr: Sigurinn hefði getað endað stærri
Matti Guðmunds: Jordyn Rhodes komin í toppform og með sjálfstraust
Úlfa Dís: Prófa alltaf að skjóta þegar ég er með pláss
Jóhann Birnir: Þýðir ekkert fyrir okkur að horfa á töfluna
Venni: Við erum ekki það litlir að við þorum ekki að horfa á toppinn
Jordyn Rhodes: Fyrsta þrennan á ferlinum
Kom af bekknum og varð hetja Þróttara - „Erfitt fyrir Venna að velja"
Gunnar Heiðar: Við erum bara að fókusa á það sem við erum að gera
„Finnst í þessum undanförnum leikjum það vera auðveldara fyrir andstæðinginn að skora heldur en okkur"
Kalli um mark Úlfu Dísar: Eitthvað sturlað og ekki í fyrsta sinn sem ég sé þetta
Bjarni Jó: Meiri stíll yfir okkur
Hemmi Hreiðars: Rándýr dómaramistök
banner
   fim 14. ágúst 2025 20:31
Haraldur Örn Haraldsson
Dóri Árna: Við hefðum þurft að vera betri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það var mikið í húfi og fyrri hálfleikurinn bar þessara merki," sagði Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks eftir 2-1 tap gegn Zrinjski Mostar í kvöld.


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  2 Zrinjski Mostar

„Þetta var gæðalítill fyrri hálfleikur hjá báðum liðum. Munurinn er þetta mark sem skoppar af hnénu á honum inn í marki. Ekkert vonlaus staða, þannig séð að fara inn í seinni hálfleikinn. Það var ákveðið högg að fá á sig sjálfsmark eftir einhverjar sekúndur í seinni hálfleik. Eftir það fannst mér við gera vel og koma okkur inn í leikinn. Við fengum svo sannarlega stöður og einhver færi til að jafna. Heilt yfir gerðum við ekki nóg, og þetta féll þeirra megin í dag klárlega. Þannig er bara stundum fótbolti. Við hefðum bara þurft að vera aðeins betri," sagði Halldór.

Breiðablik sótti um að leik þeirra gegn Val síðustu helgi yrði frestað en KSÍ neitaði þeirri beiðni.

„Það þýðir ekkert að vera pæla í því eða að tala um það. Liðin sem við spilum við fá alltaf viku á milli leikja, og við fáum það ekki. Við vissum það, það hefur alltaf verið þannig. Við bjuggum okkur undir það, og gerðum ekki ráð fyrir neinu öðru en að vera spila með tvo, þrjá daga milli leikja í nokkrar vikur. Þannig það þýðir ekkert að vera tala um það eftir á. Mér fannst við bara ágætlega ferskir, fyrri hálfleikurinn var hægur og ekki góður, en mér fannst við bara kraftmiklir í seinnihálfleik. Þannig að nei, ég get ekki verið að skrifa þetta á það," sagði Halldór.

Breiðablik fær annað hvort Virtus frá San Marino eða Milsami Orhei frá Moldavíu í næstu umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Þegar þessi frétt er skrifuð leiðir Virtus 4-3 í einvíginu.

„Moldóvska deildin hefur verið mjög sterk, Sheriff hefur unnið hana mörg ár í röð og náð frábærum árangri í Evrópu. Milsami er auðvitað ríkjandi meistarar, og góðir í deild. Ég held það séu allar líkur á að Moldóvarnir fari áfram og það verður bara hörku viðureign. Þeir eru í deild sem skilar mjög sterkum liðum inn í Evrópu, þannig það verður bara erfið viðureign eins og þessi. En svo sannarlega tækifæri til að vinna þá," sagði Halldór.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner