Jóhann Laxdal var virkilega ánægður með sigur Stjörnunnar á Val í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
„Leikurinn var ekkert eitthvað geggjaður fótboltalega hjá okkur. Þetta var meira hlaupaæfing, færslur og þannig. Það gekk kannski illa að halda boltanum. Þeir mega alveg vinna possessionið ef við skorum mörkin," sagði Jóhann Laxdal.
Jóhann skoraði sigurmarkið í kvöld með skalla eftir hornspyrnu.
„Alveg geggjuð. Það var mjög gaman að fara inn í boxið af því að Daníel leyfði mér að fara inn í boxið í eitt skipti og ég svaraði því. Ég er búinn að segja Rúnari að ég var brjálaður að vera alltaf til baka. "
Varnarleikur Stjörnunnar var virkilega góður í kvöld og var Jóhann ánægður með liðsheildina hjá Stjörnunni.
„Við vorum mjög fastir fyrir og menn voru að tækla boltann og vinna fyrir hvorn annan eins og liðsheildin er. Við erum í góðu formi og þá höldum við haus og náum að gera hlutina sem við eigum að gera."
Jóhann hefur enga draumamótherja fyrir 8-liða úrslitin.
„Nei þetta er bara on to the next one."
Þrír leikmenn fóru útaf vegna meiðsla hjá Stjörnunni í kvöld en Jóhann er lítið að stressa sig á því fyrir stórleikinn gegn FH.
„Það er aldrei gaman að sjá menn fara útaf meidda. En þá fá menn tækifæri. Menn voru mjög flottir sem komu inn þannig ég er ekkert stressaður útaf því."

Athugasemdir