Heimild: Sporting Life
Lucas Leiva miðjumaður Liverpool vill skrifa undir nýjan samning hjá félaginu.
Þessi leikmaður frá Brasilíu verður samningslaus eftir næsta tímabil en vill ekkert fara.
,,Á sumrin fara nokkrir leikmenn og aðrir koma inn. Við bíðum og sjáum, við viljum enda tímabilið vel," sagði Lucas.
,,Ég vill vera einn af þeim sem verða áfram eftir sumarið. Ég á eitt ár eftir þegar þessu tímabili lýkur svo ég þarf að vera trúr félaginu. Ég er að reyna að sanna að ég hafi allt sem þarf til að vera hérna."