Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. apríl 2011 15:28
Magnús Már Einarsson
Heimild: Givemefootball 
Robbie Fowler æfir með Liverpool
Mynd: Getty Images
Robbie Fowler, fyrrum framherji Liverpool, æfði með varaliði félagsins í gær og mun æfa meira með liðinu á næstunni.

Fowler er í miklum metum á Anfield en hann er núna á mála hjá Perth Glory í Ástralíu.

Næsta tímabil þar hefst ekki fyrr en í október og Fowler heldur sér því núna í formi á Englandi.

Hann hefur þjálfað framherja MK Dons og Bury að undanförnu og þá er hann farinn að æfa á æfingar með sínum gömlu félögum í Liverpool.

,,Þetta er gott fyrir Robbie því að þetta hjálpar honum að halda sér í formi. Hann er atvinnumaður og hegðun hans inni á vellinum var frábær," sagði Pep Segura þjálfari varaliðs Liverpool.
banner
banner
banner
banner