Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
   lau 01. október 2011 17:40
Alexander Freyr Tamimi
Ólafur Kristjáns: Að öllu óbreyttu stend ég við minn samning
Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks var sáttur með 4-3 sigur sinna manna gegn Stjörnunni í hörkuleik í lokaumferð Pepsi deildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  3 Stjarnan

„Við enduðum þetta á ágætis nótum og erum sáttir við það. Við vorum að mæta sennilega frískasta liði deildarinnar í sóknarleiknum. Geysilega skemmtilegt og kröftugt lið sem Stjarnan er með og það var gaman að mæta þeim. Við ákváðum að vera svolítið djarfir líka og ég held að þessi kokteill hafi boðið upp á mjög fjörugan leik,“ sagði Ólafur við Fótbolta.net.

Stjarnan stal sigrinum gegn Blikum á lokamínútunni þegar liðin mættust í Garðabæ fyrr í sumar og var því vel við hæfi að Guðmundur Pétursson skyldi skora sigurmarkið fyrir Blika í uppbótartíma í dag.

„Ég held að sá leikur í Garðabænum hafi verið ákveðin þáttaskil hjá báðum liðum, allavega hvað varðar okkar lið. Það setti okkur aðeins á afturlappirnar og braut tímabilið svolítið fyrir okkur. Það er bara jafnt á komið með liðunum að skora á síðustu mínútu.“

Ólafur viðurkennir að gengið í ár hafi verið vonbrigði en að liðið hafi þó ekki endað mun neðar en þeim var spáð fyrir tímabilið.

„Okkur var nú spáð fjórða til fimmta sæti í öllum spám fyrir mótið, þannig að við erum aðeins neðar en menn spáðu okkur. En ég get alveg tekið undir það, menn héldu kannski að við færum úr Evrópukeppnismöguleika í fjórða til fimmta sætið, en ekki úr fallbaráttunni og upp í sjötta sætið. En það sem að skiptir máli er það sem kemur upp úr hattinum í lok móts, en við þurfum að gera betur á mörgum sviðum fyrir næsta tímabil.“

En hvað þarf að gerast fyrir næsta tímabil ef Blikar ætla að ná betri árangri en í ár?

„Leikmennirnir sem að spiluðu núna þurfa að bæta sig í frammistöðu miðað við árið í ár, það var fall í frammistöðu hjá mönnum milli ára og þar af leiðandi þurfa menn að bæta sig. Þeir sem eru að koma nýjir inn þurfa að taka sinn skerf af því borði sem að boðið er upp á og það gæti verið að við þyrftum að bæta við mönnum utan frá, til þess að vera með lið sem að á möguleika í þessi lið sem eru í toppbaráttunni.“

Ólafur segir að þrátt fyrir að Blikar hafi ekki staðið undir væntingum í ár, þá sé hann hvergi af baki dottinn og hyggst hann vera áfram með liðið.

„Ég er alls ekkert af baki dottinn. Ég sé þetta sem process sem við erum í, og er með samning áfram. Að öllu óbreyttu verð stend ég við minn samning og síðan verða stjórnarmenn að sjá hvort að þeir vilji gera breytingar eða ekki. En það hefur verið stutt vel við bakið á okkur í sumar og það heldur vonandi áfram.“
banner