,,Við höfum átt í viðræðum í um viku tíma. Þeir sóttu þetta fast og eftir því sem við ræddum lengur um þetta þá heilluðu hugmyndir þeirra sem hafa starfað við félagið," sagði Willum Þór Þórsson eftir að hann skrifaði undir samning við Leikni R. í dag.
,,Hér hafa verið hörkuþjálfarar undanfarin ár. Ég get nefnt Sigurstein Gísla, Gunnar Einarsson með honum og Zoran sem kom í sumar. Garðar (Gunnar Ásgeirsson) sem hefur þjálfað Leikni frá því ég man eftir því og fleiri hörkuþjálfarar. Ég lít mjög jákvæðum augum á þetta og er stoltur af því að fá að stíga hérna inn og halda þessu starfi áfram."
Willum Þór hefur fylgst með liði Leiknis undanfarin ár og þekkir til leikmanna í Breiðholtinu.
,,Ég hef séð marga leiki undanfarin ár og sá marga leiki í sumar. Þetta eru duglegir og kröftugir strákar og kjarninn er uppalinn og það er sú stefna sem menn vilja halda í. Síðan hafa menn verið óhræddir við að styrkja liðið með öflugum leikmönnum."
Leiknismenn voru nálægt því að komast upp í Pepsi-deildina í fyrra en í ár bjargaði liðið sér frá falli í síðustu umferð. Willum segir að stefnan á næsta ári sé að fara upp í Pepsi-deildina.
,,Þetta er spennandi lið á margan hátt og ég tel að hér sé hægt að gera góða hluti. Þetta er ekki spurning hvort að Leiknir fari í úrvalsdeild heldur hvenær. Við munum örugglega vinna í vetur og á næsta tímabili af þeim metnaði að það verði hægt. Í þessari deild eru bara tvö sæti sem eru spennandi," sagði Willum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























