Gunnar Einarsson, spilandi aðstoðarþjálfari Leiknis, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Víkingi í kvöld. Gunnar lék í hægri bakverðinum hjá Leikni gegn liðinu sem hann spilaði með seinni hluta síðasta sumar.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 2 Leiknir R.
Það kom flestum á óvart að Gunnar ákvað að snúa aftur í herbúðir Leiknis í vetur en hann er Willum Þór Þórssyni til aðstoðar.
„Það er gaman að fá tækifæri að vinna með Willum. Fyrir leikni að fá Willum er fyrir mér ákveðið „statement". Ég gat ekki horft undan þessari áskorun."
Hann segir að sigur Leiknis í kvöld hefði átt að vera stærri.
„Mér fannst að við ættum að taka þrjú mörk í seinni hálfleik og tryggja sigurinn miklu fyrr," sagði Gunnar.
Viðtalið við hann má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















