,,Þetta voru ekki ásættanleg úrslit fannst mér," sagði Haukur Lárusson miðvörður Fjölnis sem skoraði jöfnunarmark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Þrótti í Reykjavíkurmótinu í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Fjölnir
,,Svona eru leikirnir, við áttum mörg skot, en fæst hittu á rammann og því fór sem fór."
Liðið hefur nú gert tvö jafntefli í riðlinum gegn Fylki og Þrótti og á eftir leik gegn Val.
,,Það er klárlega stefnan og hefur alltaf verið að fara upp úr riðlinum, við förum bara í leikinn gegn Val og tökum hann."
,,Það er alltaf gaman að skora en liðið okkar skorar ekki fleiri en hitt þá telur þetta ekki neitt."
Haukur sem er 25 ára gamall hefur ekki spilað mótsleik síðan árið 2007 en er nú að taka fram skóna að nýju.
,,Ég var Íslandsmeistari í Carlsberg utandeildinni í sumar og það kveikti áhugann á að koma aftur," sagði hann.
,,Ég er í engu standi eins og sést, ég er alveg búinn á því eftir 45 mínútur en þetta verður komið í sumar. Það er hörkubarátta um miðvarðarstöðuna í þessu liði, það virðast allir vilja spila miðvörðinn svo ég verð að gera mitt besta."
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir






















