,,Þetta var naumt en ég held að það hafi verið sanngjarnt, þó svo við höfum náð að jafna og sett smá spennu í leikinn," sagði Tryggvi Sveinn Bjarnason leikmaður Stjörnunnar eftir 3-2 tap liðsins gegn Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 Stjarnan
Í liði Stjörnunnar var mannekla fram á við svo Tryggvi fékk að spila sem framherji í leiknum í kvöld og skoraði tvö mörk.
,,Það er alltaf gaman að vera frammi," sagði Tryggvi en síðara markið skoraði hann eftir að hafa sloppið einn í gegn og setti boltann á fjær eins og besti framherji.
,,Já, og með vinstri og allt, það gerist ekki betra."
,,Þetta er ekkert mál, ég spilaði sem framherji þegar ég var að byrja í meistaraflokki. Pétur Pétursson tók upp á því að henda mér í sóknina þegar ég var yngri og einhvern veginn hefur þetta fest við mig að ég fer fram þegar það er lítið eða mikið um meiðsli."
Nánar er rætt við Tryggva í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
























