,,Ég er mjög sáttur með þetta, sérstaklega að geta skorað annað slagið, það er gott," sagði Þorsteinn Már Ragnarsson framherji KR við Fótbolta.net eftir 3-2 sigur liðsins gegn Breiðabliki í dag.
Þorsteinn Már skoraði fyrsta mark KR í dag en hann kom til félagsins frá Víkingi Ólafsvík síðastliðið haust.
,,Þetta var skref upp á við og það var kominn tími á að taka það," sagði Þorsteinn
,,Þetta er allt miklu stærra og þetta er allt annað batterí. Mér líst vel á þetta, þetta er mjög gaman."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir























