,,Við vorum undir í hálfleik en náðum aðeins að rífa okkur upp og setja tvö í byrjun síðari hálfleiks. Við fengum reyndar mark í andlitið beint eftir það en eftir að við skoruðum þriðja markið var þetta aldrei spurning," sagði Fjalar Þorgeirsson markvörður KR við Fótbolta.net eftir 4-2 sigur á BÍ/Bolungarvík í Lengjubikarnum í kvöld.
Hannes Þór Halldórsson er farinn til Brann á láni fram í byrjun maí og Fjalar fær tækifærið í markinu á meðan.
,,Þegar maður fær að spila reynir maður að sýna eitthvað. Ég fæ að spila alla leiki þangað til að Hannes kemur til baka og ég ætla að nota tækifærið vel," sagði Fjalar en honum líst ágætlega á stöðuna á KR í dag.
,,Það eru nokkrir leikmenn í smá meiðslum en annars erum við að koma sterkir inn. Við erum reyndar að fá á okkur dálítið mikið af mörkum en við ætlum að reyna að laga það fram að móti."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir





















