Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
   lau 28. apríl 2012 20:28
Sebastían Sævarsson Meyer
Rúnar Kristinsson: Auðvitað stefnum við á að vinna deildina
Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í dag.
Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er mjög ánægður með framlag minna manna. Þetta var rólegur leikur en við vorum meira með boltann og stýrðum þessu. Það var lítið um færi og þetta eina mark dugði okkur, ég er ánægður með það,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir að liðið hampaði Lengjubikartilinum í dag með 1-0 sigri á Fram í úrslitaleiknum.

,,Þetta var voðalega jafn leikur og fá færi. Mér fannst við stjórna þessu meira og eiga meiri möguleika á að búa eitthvað til en auðvitað áttu þeir sín hættulegu færi. Framarar eru með gríðarlega gott lið og eru mjög hættulegir."

Lestu um leikinn: Fram 0 -  1 KR

Fram hafði unnið KR í þrígang á undirbúningstímabilinu, meðal annars í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í febrúar þar sem Fram hafði betur 5-0 en KR náði loksins var hefndum í dag.

,,Ég lít ekki á þetta sem einhverja hefnd, við viljum bara fara í fótboltaleiki til að vinna þá. Við reyndum það í öll þau skipti sem við töpuðum fyrir Fram og þeir voru bara betri. En við höfðum betur í dag og ég er virkilega ánægður með það, þetta var úrslitaleikur í Lengjubikarnum sem er gaman fyrir okkur að vinna og gefur mönnum aukið sjálfstraust viku fyrir mót þannig að ég er virkilega ánægður með sigurinn," hélt Rúnar áfram.

Pepsi-deildin hefst um næstu helgi og miklar væntingar eru gerðar til Íslands- og bikarmeistarana sem stefna á að endurtaka leikinn frá því í fyrra.

,,Við stefnum ekki að fara mikið neðar en í fyrra. Við unnum bæði deild og bikar og auðvitað reynum við að stefna á að endurtaka leikinn,“ sagði Rúnar.

,,Það verður mjög erfitt hins vegar. Öll lið eru búin að styrkja sig og það verða fimm eða sex lið að berjast um þetta langt fram eftir mót. Við viljum vera eitt af þeim liðum og tryggja það að KR verði í Evrópukeppni á hverju ári. Auðvitað stefnum við að vinna deildina en við verðum að berjast við góð lið.“

Lítill tími gefst þó til að fagna Lengjubikarnum en KR mætir FH í Meistarakeppninni á þriðjudaginn á Laugardalsvelli.
Athugasemdir
banner