,,Þetta er frábær liðsstyrkur og gefur liðinu mikla möguleika og góð viðbót við það sem við vorum búnar að fá sem er Anna Þórunn og Bryndís Lára markmaður, við erum mjög glöð með þennan liðsstyrk" sagði Jón Ólafur Daníelsson þjálfari kvennaliðs íBV við Fótbolta.net en félagið hefur fengið Shaneka Gordon frá Grindavík og Andreu Ýr Gústavsdóttur frá Breiðablik.
,,Við missum fyrirliðann Þórhildi Ólafs, Kolbrún Stefánsdóttir er hætt, Edda María fór í Stjörnuna aftur og Birna Berg er meidd. En þessi nýi liðsstyrkur breytir hópnum okkar á jákvæðan hátt og gefur okkur aukna möguleika á mörgum breytingum innan liðsins og hópsins."
,,Við vorum dálítið brotnar fram á við í fyrra, hversu skemmtilega sem það hljómar miðað við að við vorum í þriðja sæti. En okkur voru oft þröngir kostir settir því við áttum litla möguleika á að breyta í framlínunni í fyrra. Við vorum kantmannslausar en þetta breytir öllu og það eru margir möguleikar til breytinga ef þess þarf."
Nánar er rætt við Jón Ólaf í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
























