“Ég held svona heilt yfir að þetta hafi verið sanngjörn úrslit,“ sagði Jörundur Áki eftir 2-2 jafntefli á Akureyrarvelli. „Við vorum að mér fannst miklu betri í fyrri hálfleik en við gáfum eftir í seinni og þeir voru betri. Engu að síður, þá hefðu bæði lið getað stolið sigri hér í dag.“
Lestu um leikinn: KA 2 - 2 BÍ/Bolungarvík
Það var ekki nein uppgjöf hjá leikmönnum BÍ/Bolungarvík í kvöld en þeir náðu að jafna nánast strax í bæði skiptin eftir að þeir lenda undir. Allt í allt þá náði KA ekki að halda forustu í meira en tvær til þrjár mínútur.
„Auðvitað er maður alltaf fúll að fá á sig mark og sem betur fer brugðust strákarnir við á þennan hátt og keyrðu í bakið á þeim. Við uppskárum þarna tvö góð mörk.“
Nánar er rætt við Jörund Áka í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
Athugasemdir























