,,Ég er auðvitað mjög ánægður með að vinna leikinn og það er auðvitað það sem við tökum úr þessu, þessi þrjú stig," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Hauka eftir 1-0 sigur á Tindastól í dag.
,,Mér fannst við vera heldur sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, en áttum í basli í seinni hálfleik og þá fannst mér Stólarnir vera betri en við og fengu hættuleg færi en Daði stóð sig vel í markinu."
,,Þessi deild er bara þannig að það virðast allir geta unnið alla í þessu svo maður verður að halda einbeitingu og við gerðum það. Eins og ég segi við lentum í basli í seinni hálfleik, en við héldum markinu hreinu og það dugði okkur í dag."
,,Við erum búnir að fá einhverja styrkingu og Gumma inn sem er búinn að vera meiddur eitthvað. Gummi og Hilmar sem spilaði á miðjunni í dag eru kannski ekki í besta leikformi sem hægt er að hugsa sér, en ég er fyrst og fremst ánægður með það að þeir skildu komast svona langt inn í leikinn og Gummi að klára hann."
,,Mér líst ljómandi vel á framhaldið. Við erum á fínasta stað í deildinni einst og staðan er núna, en það er mikið eftir af þessu móti og margt eftir af þessu móti, svo við verðum bara að halda einbeitingu," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























