Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   fim 26. júlí 2012 07:30
Elvar Geir Magnússon
Heimir verður í jakkafötum: Gæti tekið fram saltfiskinn
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Heimir Guðjónsson var jakkafataklæddur í fyrri leiknum gegn AIK og endurtekur leikinn á Kaplakrikavelli í kvöld þegar seinni leikurinn fer fram. Staðan í einvíginu er 1-1.

„Þetta er Evrópuleikur og þá verður að tjalda öllu. Maður gæti jafnvel tekið fram saltfiskinn á morgun, það er aldrei að vita," sagði Heimir við Fótbolta.net á blaðamannafundi í gær.

„Ég held að við eigum ágætis möguleika Þó við höfum náð góðum úrslitum úti eru þeir líklegri að fara áfram. Við þurfum að spila virkilega góðan leik til að eiga möguleika,"

„Við þurfum að geta haldið boltanum innan liðsins og sótt á þá. Það þýðir ekki að spila bara varnarleik og vona það besta. Við þurfum að ná að herja á þá. Þeir eru mjög öflugt lið og með marga góða sóknarmenn."

Bjarki Gunnlaugsson hefur spilað tvo 90 mínútna leiki á viku og þessi 39 ára gamli leikmaður er klár í slaginn í kvöld. Hann var einn allra besti leikmaðurinn í fyrri leiknum en athygli vakti að hann var ekki hvíldur í deildarleik gegn Grindavík síðasta sunnudag.

„Honum leið vel eftir leikinn í Svíþjóð og vildi endilega spila. Hann er liðinu gríðarlega mikilvægur," sagði Heimir.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:15 á Kaplakrikavelli.
Athugasemdir
banner