Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 18. nóvember 2013 16:44
Magnús Már Einarsson
Kovac pirraður yfir drykkjufréttum: „Trúir þú þessu?"
„Hélt þið væruð herramenn á Norðurlöndunum"
Niko Kovac horfir til Kolbeins Tuma á fréttamannafundinum.
Niko Kovac horfir til Kolbeins Tuma á fréttamannafundinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Niko Kovac, landsliðsþjálfari Króata, segir að fréttir um að átta leikmenn liðsins hafi pantað 70 bjóra upp á herbergi séu ekki sannar en Vísir birti frétt þess efnis í dag.

Kolbeinn Tumi Daðason, íþróttafréttamaður hjá Vísi, spurði hann út í fréttina á fréttamannafundi í dag og Kovac brást ekki vel við.

Kovac svarar vanalega spurningum með hjálp frá túlki en hann sagði strax á ensku: ,,Ég spyr þig, trúir þú þessu?"

Kolbeinn Tumi svaraði í kjölfarið. ,,Já, ég veit að þetta er satt."

Kovac svaraði þá um hæl. ,,Ef það er tilfellið. Ef þú trúir því í alvörunni þá þakka ég fyrir gestrisnina. Ég veit að þetta er ekki satt. Ég hélt að þið væruð herramenn á Norðurlöndunum en svo virðist ekki vera."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner