Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. október 2018 19:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Mahrez með fullkomnar vítaspyrnur á æfingum
Mynd: Getty Images
„Þetta eru góð úrslit," voru orð Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City eftir markalaust jafntefli við Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Við reyndum að vinna og við héldum hreinu á Anfield, sem er frekar sérstakt. Við fengum okkar færi og reyndum að vera við sjálfir að því leyti hvernig við spiluðum."

„Á síðasta tímabili töpuðum við hérna, núna gerðum við jafntefli, kannski vinnum við næst."

Riyad Mahrez fékk tækifæri til þess að tryggja Manchester City sigurinn þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en hann klikkaði á vítaspyrnu.

„Hann hafði hugrekkið og hreðjarnar til að stíga á punktinn. Á æfingum þá tekur hann fullkomnar vítaspyrnur en stundum gerist svona. Sergio Aguero tekur vanalega vítaspyrnurnar en hann var farinn út af."
Athugasemdir
banner
banner
banner