lau 08. desember 2018 19:26
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England: Chelsea fyrsta liðið til að vinna Man City á tímabilinu
Chelsea 2 - 0 Manchester City
1-0 NGolo Kante ('45 )
2-0 David Luiz ('78 )

Síðdegisleikur ensku úrvalsdeildarinnar í dag var viðureign Chelsea og Englandsmeistara Manchester City.

Liverpool fór á toppinn eftir sigur á Bournemouth fyrr í dag og Man City þurfti því að minnsta kosti stig úr leiknum við Chelsea til að endurheimta toppsætið.

Manchester City var heldur sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en það var hins vegar N'Golo Kante sem skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyrir Chelsea á 45. mínútu þegar hann hamraði boltanum netið.

Heimamenn bættu við öðru marki á 78. mínútu og þar var að verki varnarmaðurinn David Luiz en hann skallaði boltann í markið eftir hornspyrnu, Chelsea komið í 2-0.

Ekki var meira skorað og Chelsea er því fyrsta liðið til að vinna Man City í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Það er því ljóst að Liverpool verður á toppnum að lokinni 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Chelsea er nú í 3. sæti með 34 stig en Man City í 2. sæti með 41. stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 10 9 0 1 15 5 +10 27
2 Brighton 10 7 1 2 26 7 +19 22
3 Man City 10 7 0 3 21 13 +8 21
4 Liverpool 10 5 3 2 14 10 +4 18
5 Chelsea 10 5 1 4 19 16 +3 16
6 Everton 10 4 4 2 12 10 +2 16
7 Bournemouth 10 4 3 3 16 14 +2 15
8 Brentford 10 3 5 2 16 11 +5 14
9 Leeds 10 3 5 2 10 8 +2 14
10 Aston Villa 10 3 4 3 14 17 -3 13
11 Tottenham 10 3 3 4 10 11 -1 12
12 Newcastle 10 3 3 4 13 16 -3 12
13 Hull City 10 2 5 3 11 11 0 11
14 Ipswich Town 10 3 2 5 15 20 -5 11
15 Fulham 10 2 4 4 10 12 -2 10
16 Nott. Forest 10 2 3 5 9 13 -4 9
17 Coventry 10 3 0 7 10 19 -9 9
18 Man Utd 10 1 5 4 14 19 -5 8
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
19 Sunderland 10 2 2 6 8 17 -9 8
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Crystal Palace 10 2 1 7 10 24 -14 7
Slapp
banner