Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. desember 2018 23:15
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Guardiola: Allir vilja vinna okkur
Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City.
Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City.
Mynd: Getty Images
Manchester City tapaði fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu í kvöld þegar Chelsea sigraði þá með tveimur mörkum gegn engu.

Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City var að vonum vonsvikinn í leikslok.

„Þeir sóttu mikið á okkur vinstra meginn á vellinum og við náðum ekki að höndla það nóg og vel. Við höfum oft spilað verr en þetta og unnið."

„Hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik var frábært, þeir náðu ekki að skapa sér mörg færi en tókst engu að síður að skora, við börðumst allt til enda," sagði Guardiola.

Manchester City hefði getað komist að nýju í toppsætið með sigri, Guardiola segir að þeir muni gera sitt allra besta til þessa verja titilinn.

„Við munum gera okkar allra besta við að reyna verja titilinn, allir vilja vinna okkur. En nú er ekkert annað að gera en að einbeita sér að næsta leik sem er í Meistaradeildinni."

Manchester City mætir Hoffenheim í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner