banner
   mán 25. febrúar 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Fékk bolamynd með Bale árið 2014 - Er núna í byrjunarliði Real
„Það er á hreinu að þetta er draumur og ég ætla að reyna að halda honum á lífi eins lengi og ég get," segir vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilon hjá Real Madrid. Hinn 22 ára gamli Reguilon hefur slegið Marcelo út úr liðinu hjá Real Madrid og vakið athygli fyrir góða frammistöðu að undanförnu.

Það er gaman að skoða gamlar myndir á Instagram síðu Reguilon. Þar má meðal annars sjá fimm ára gamla bolamynd af Reguilon með Gareth Bale þar sem hann skrifar: „Einn besti dagur lífs míns."

Í dag er Reguilon í byrjunarliði Real Madrid á meðan Bale hefur verið mikið á bekknum. Reguilon hefur verið mikill stuðningsmaður Real Madrid alla tíð en hann fór að spila með yngri liðum félagsins þegar hann var níu ára gamall.

Eftir að hafa farið til Logrones í spænsku C-deildinni á láni og spilað með varaliði Real Madrid þá náði Reguilon að brjótast inn í aðalliðið á þessu tímabili.

Hér má sjá Reguilon og Bale fyrir fimm árum en síðan þá hefur líf þess fyrrnefnda breyst mikið!

Slapp
banner